Fráhaldsafmæli
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 941 dögum
01.07.2007 22:54:28 / minnkandi

Blogg-flutningar


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.06.2007 16:02:33 / minnkandi

Dagur 351 - laugardagurinn 30.júní

Jiminn blíði hvað það er mikil blíða úti.  Var að koma heim eftir allskyns stúss;  Byrjaði daginn á að fara í fótsnyrtingu á Mecca spa með vinkonu minni - ótrúlegt dekur :).  Fór síðan á o.a. fund kl.11.30 og innbyrgði þar andlegu næringu dagsins, síðan á Nings (sem nota bene mæla fyrir mann matinn ef maður vill!!!) og þaðan á Laugarveginn þar sem var suðræn útlandastemmning.  Alveg magnað hvað allt breytist í svona veðri, ekki skrýtið að við séum öðruvísi í skapinu en Spánverjar eða Kaliforníubúar 8)

Matseðill dagsins:

M: PR:  120g vanilluskyr, 30g sojamjöl, 1 egg.  Ávöxtur:  240g bláber

H:  PR:  120g kjúklingur.  Grænmeti:  480g blandað grænmeti.  Fita:  15g

K:  PR:  120g svínakjöt.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

Njótið blíðunnar meðan hún varir :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 14:05:40 / minnkandi

Dagur 349 - fimmtudagurinn 27.júní

Er í brjáluðu stuði að pakka en við erum að fá afhenta nýju íbúðina okkar þann 4.júlí.  Þá mun verða málað og við flytjum síðan 4-5 dögum síðar.  Erum að flytja úr vesturbæ Reykjavíkur í suðurhlíðar Kópavogs - Svakalega spennandi!  En það er dálítið erfitt að ákveða hverju á að henda.....samt gaman:D

Matseðill dagsins er svona:

M:  PR:  120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl.  Ávöxtur:  240g bláber

H:  PR:  30g parísar-kæfa, 1 egg, 30g eðal-skinka.  Grænmeti:  60g hveitikím.  Fita:  15g

K:  PR:  120g kjúklingur.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti. Fita:  30g

Vona að öllum gangi vel og endilega kvitta ef þið kíkið við :)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 08:05:42 / minnkandi

Leiðari á O.A. fundi

 Á laugardaginn var fékk ég þann heiður að vera leiðari á O.A. fundi. Fyrir þá sem ekki þekkja 12 spora samtök þá er alltaf einn leiðari á fundum sem segir söguna sína í 10-15 mínútur og svo tala hinir á fundinum (sem vilja) í 4 mínútur.  Ég var svo hrædd um að gleyma einhverju af því sem ég vildi segja að ég skrifaði söguna mína niður kvöldið áður og hafði fyrir framan mig.  Ég las hana nú síðan ekki beint upp en þar sem ég skrifaði hana niður þá get ég núna deilt henni með ykkur:

Ég ætla í stuttu máli að segja ykkur söguna mína en eyða kannski meiri tíma í batasöguna mína af því að ég held kannski að hún sé enn mikilvægari.  Já!  Ég varð of þung mjög ung, átti auðvelt með að verða mér úti um gúmmolaði þar sem foreldrar mínir áttu kjörbúð og svo var líka mikið um mat á heimilinu.  Ég fann mér alltaf leiðir til að borða það sem ég var sólgin í og man eftir mér að laumast í sælgæti án þess að aðrir sæju bæði í búðinni og heima.  Ég vandist því fljótt á óheiðarleikann gagnvart mat.  Ég byrjaði snemma á að fara í megranir og man mjög snemma eftir mömmu að vera að halda í við mig og ég held í sannleika sagt að ég hafi reynt ALLA megrunarkúra í  gegnum tíðina sem ég frétti af.  Ég byrjaði  af rosalegum áhuga og af mikilli elju í þeim öllum og gekk alltaf mjög vel ......þangað til ég féll fyrir fíkninni.  Ég var í raun alltaf svona jójó eða túramanneskja, gekk vel  í nokkra mánuði, vikur eða daga en datt svo fljótt aftur í það.  Mér var strítt sem barni út af því hvað ég var feit svo ég fékk mjög snemma neikvæða líkamsímynd.  Þegar ég fullorðnaðist brotnaði  ímyndin svo í enn fleiri brot eftir því sem megrunar-mistökin urðu fleiri.  Mér fannst alltaf jafn ömurlegt og stórfurðulegt að hafa geta gert flest það sem ég hafði vilja gera í lífinu og náð flestum takmörkunum en einhvern veginn gekk þetta atriði ALDREI!!  Ég kom inn í O.A. 2004 eftir að hafa vitað af samtökunum nokkuð lengi og skoðað heimasíðuna oft. Ég þekkti alkóhólisma vel, var farin að vinna í meðvirkninni minni og farin að skilja að matarfíknin mín væri mjög sambærileg alkóhólismanum.  Ég var þarna loksins farin að átta mig á því að það skipti engu máli af hverju ég var matarfíkill.  Fram að þessu hafði ég eytt alveg ómældum tíma í sjálfsrannsóknir og fjölskyldugreiningu af því að ég hélt alltaf að ef ég skildi ÁSTÆÐUNA fyrir því að ég væri matarfíkill þá hlyti ég að lokum að geta grennst.  Ég kom því hérna inn með opnum huga og fór strax í fráhald.  Það voru þó ekki margir mánuðir þar til fóru að koma brestir í fráhaldið en eina fíkniefnið sem ég tók út þarna fyrst var sykur.  Ég var í raun heldur ekki tilbúin að breyta lífi mínu á nokkurn hátt og vann t.d. oft  allt of mikið en þreyta var ein af tilfinningunum sem ég notaði alltaf sem ástæðu til ofáts.  Ég vann sporavinnu og það var alveg stórkostleg upplifun og ég veit að ástæðan fyrir því að ég datt aftur inn í svona öruggt fráhald eins og ég gerði fyrir tæpu ári síðan var af því ég hafði þennan grunn úr sporavinnunni.  Það er líka sagt að á sama hátt og sjúkdómurinn okkar þróast þá þróast batinn líka og ég held að það sé gott fyrir okkur að muna eftir því.  Ég hætti í O.A. rúmlega ári eftir að ég kom inn en hélt í raun áfram að æfa mig í að sleppa og treysta mínum æðri mætti, og reyndi að passa mig á að byrgja hluti ekki innra með mér og lifa í deginum í dag.  Aftur á móti fór maturinn fljótt alveg út um þúfur og ég var næstum orðin jafn þung og þegar ég byrjaði í O.A. þegar ég komst aftur í fráhaldið fyrir tæpu ári.  Ég var þá aftur búin að sjá að ég gæti þetta ekki ein og var loks tilbúin til að gera ALLT til að fá bata.  Þá var ég líka ákveðin og tilbúin til í að skipuleggja líf mitt þannig að fráhaldið yrði númer eitt og í forgangi.  Ég ákvað í raun að hafa sjálfa mig í hálfgerðri gjörgæslu og til að byrja með sleppti ég t.d. bara þeim mannamótum og uppákomum sem ég vissi að mér myndu þykja óþægileg.  Það er alveg ljóst að alkóhólisti sem vill ná bata myndi ekki fara beint í brjálað partý þegar hann væri að byrja í meðferð og hvers vegna ættum við þá að þola að fara beint í sukk-matarboð í upphafi fráhalds?  Smám saman fór mér svo aftur á móti að finnast allt í lagi að fara út í hvaða aðstæður sem voru af því ég lærði að halda með mér og matnum mínum.  Rétt áður en ég komst í fráhaldið fyrir ári kom í ljós að bæði mamma mín og systir væru á leið í krabbameinsmeðferðir  og þetta var tilfinningalega svakalega erfiður tími.  Ég upplifði mjög sterkt vanmáttinn bæði í matnum og meðvirkninni og á þessum tímapunkti var ég orðin nógu meðvituð til að vita að ef ég leitaði mér ekki hjálpar þá myndu þessir erfiðleikar bara setjast utan á mig í fleiri og fleiri kílóum og meiri og meiri vanlíðan.   Þráhyggjan var þarna komin á það hátt stig að ég upplifði það t.d. að vera hjá mömmu á spítalanum og geta varla einbeitt mér að því að vera með henni heldur var ég að hugsa um það hvað mig langaði að kaupa mér á leiðinni heim.  Þetta er nú eiginlega eins og beint dæmi  upp úr AA bókinni en í henni segir „ Þeir drukku (í okkar tilfelli borðuðu) til að reyna að slökkva ílöngun, sem var andlegum mætti þeirra yfirsterkari“.  Það er einmitt svona að þegar ég fæ fíkniefnin mín í kerfið þá upphefst einmitt þessi brjálæðislega ílöngun sem er svo sannarlega mínum andlega mætti yfirsterkari.  Þess vegna þarf ég einhvern annan mátt inn í líf mitt.Þó ég væri tilbúin að gefast upp þarna fyrir ári þá var ég aftur á móti ekki tilbúin að fara strax aftur inn í 12 spora samtök.  En maður er alltaf leiddur á réttan stað ef maður er opinn fyrir því og ég rambaði á konu sem var nýbúin að opna meðferðarmiðstöð út í bæ fyrir matarfíkla.  Hún er menntaður ráðgjafi, er sjálf matarfíkill með mjög langt og öruggt fráhald og í 12 spora samtökum og hefur viðað að sér mjög miklum fróðleik um sjúkdóminn.  Ég er sannfærð um að í framtíðinni verður opnuð svona meðferðarmiðstöð fyrir matarfíkla á vegum hins opinbera – við erum bara ekki komin eins langt og alkóhólistarnir.  Þarna hef ég verið núna í þetta tæpa ár, verið í daglegu tölvupóstssambandi, mætt í tíma einu sinni í viku og gert aragrúa af verkefnum sem tengjast fyrstu þremur sporunum en hún er þó ekki eiginlega að leiða mann í gegnum sporin, enda er það auðvitað hvergi gert nema í 12 spora samtökum, heldur er þetta í raun eins og meðferð.  Ég hef fundið út s.l. 11 mánuði að grundvöllur þess að ég nái að vera í fráhaldi er að fráhaldið sé í algjörum forgangi og í raun nr.1 í lífi mínu.  Fráhaldið mitt hefur verið í þennan tíma  3 vigtaðar og mældar máltíðir á dag og ekkert á milli mála nema sykurlaust gos, sykurlaust tyggjó, kaffi og te.   Ég sleppi öllum sykri, hveiti, kornvörum og sterkjum og í raun öllu því sem hugsanlega gæti kveikt hjá mér fíkn.  Þetta hef ég gert allstaðar og í öllum aðstæðum – í veislum, útlöndum og allstaðar.  Ég sendi inn tölvupóst til sponsorsins míns á hverju kvöldi með matarplani fyrri næsta dag og ef ég þarf að gera breytingar á því þá tilkynni ég þær annað hvort með öðrum tölvupósti, með sms-i eða símleiðis.  Með því að halda mig innan þessa stífa ramma í sambandi við matinn þá finn ég fyrir mjög miklu frelsi og ég fæ algjört frí frá þráhyggjunni.  Ég veit aftur á móti að um leið og ég tek minn vilja aftur til baka og fer að bregða út af prógramminu mínu án þess að halda í höndina á nokkrum öðrum þá er ég komin út á hálan ís.  Og þá er ég komin út á hálan ís ekki bara í matnum heldur öllu öðru líka því þetta helst svo í hendur.  Þetta fráhald mitt passar ekki fyrir alla og það getur líka vel verið að ég muni einhvern tíma breyta því en þá mun ég gera það undir leiðsögn og ég geri aldrei neitt EIN  framar í þessum efnum.  Þriðja sporið felst einmitt í þessu – verði þinn vilji en ekki minn.  Ég gerði um daginn verkefni þar sem ég skrifaði niður 10 jákvæð atriði tengt því að vera í þessu fráhaldi og 10 neikvæð atriði.  Mig langar að lesa þetta fyrir ykkur vegna þess að það er svo mikilvægt fyrir okkur að gera okkur nákvæmlega grein fyrir neikvæðu þáttunum líka af því að það eru þeir sem við munum nota til að sannfæra okkur um að þetta sé nú ekki þess virði – svona þegar við erum að detta niður í sjálfsvorkunina.  Ég tek það fram að það tók mig mun lengri tíma að finna neikvæðu þættina en þá jákvæðu en jákvæðu þættirnir voru: 

1.        Ég laus við matarþráhyggjuna á meðan ég er í fráhaldi

2.       Ég er mun skýrari í hugsun þegar ég er ekki í sykurbaðinu

3.       Ég næ að léttast – hinn augljósi fylgikvilli ofátsins, offitan, verður minna vandamál

4.       Ég fæ pláss til að koma fleiri hlutum en mat inn í líf mitt

5.       Ég er betri í skapinu og fíflunum í kringum mig fækkar til muna

6.       Ég hef minni þörf fyrir einangrun, bæði þegar ég er að borða og ekki

7.       Ég lifi meira í núinu og er ekki alltaf að hugsa um að lífið byrji með hinum og þessum megrunarkúrnum/átakinu

8.       Ég er ekki jafn uppstökk og með mun meiri sálarró

9.       Ég finn fyrir öryggi og meira sjálfstrausti á öllum sviðum

10.   Mér finnst líf mitt vera á leið upp á við en ekki niður á við

Og svo þeir neikvæðu: 

1.        Að þurfa alltaf að vigta og mæla matinn minn

2.       Að geta ekki fengið sér „bara smá“ af einhverju gúmmolaði

3.       Að geta ekki alltaf tekið þátt í mannfögnuðum á nákvæmlega sama hátt og aðrir

4.       Að mega aldrei fá sér neitt alveg spontant

5.       Að þurfa að vera með vesen á veitingastöðum

6.       Að mega aldrei taka sér frí frá því að vera í fráhaldi

7.       Að mega ekki gera undantekningar

8.       Að það sklja ekki alltaf allir af hverju maður er „með vesen“

9.       Að það er aðeins erfiðara að halda matarboð og fara í þau

10.   Tíminn sem fer í eldamennskuna

Ég er viss um að enginn hérna inni myndi segja að neikvæðu atriðin vægju þyngra en þau jákvæðu.  Aftur á móti þá er mjög gott að skrifa niður neikvæðu þættina líka  til að vera meðvitaður um það hvaða hugsanir geta hleypt okkur af stað í sjálfsvorkunina og stjórnsemina.  Neikvæðu atriðin eru nefnilega þau sem læðast aftan að okkur og ef við náum ekki að grípa í skottið á þessum hugsunum þá getum við verið í fallhættu.  Það sem hefur líka hjálpað mér mjög mikið við að forðast sjálfsvorkunina sem er svo hættuleg er að reyna að vera alltaf í þakklætinu.   Og þegar ég ætla að fara yfir í vanþakklætið þá skrifa ég niður 5 atriði á dag til að vera þakklát fyrir.  Þetta er ótrúlega effektíft og ég hef oft náð að snúa heilanum 180 gráður á nokkrum mínútum!  Það er nefnilega alltaf eitthvað í lífinu sem maður getur verið þakklátur fyrir og líka alltaf eitthvað til að vera vanþakklátur fyrir – en við höfum alltaf þetta val – ætlum við að nota þessi frábæru tæki sem okkur hafa verið gefin til að vera í bata frá matarfíkninni okkar eða ekki?  Fyrir mér er það í raun þannig í dag að ef ég hætti í fráhaldinu mínu, kasta því út um gluggann og hætti að vinna vinnuna mína þá finnst mér ég eiginlega vera að sýna mjög mikið vanþakklæti.  Ég lít á fráhaldið mitt sem gjöf og þess vegna geri ég það sem ég get til að halda mér á sem allra öruggastri braut svo ég geti verið til staðar fyrir sjálfa mig og aðra.  Og með því að standa svona með matnum mínum hefur það smitað út frá sér á öll önnur svið lífsins.  Þetta ár er búið að vera eiginlega bara ævintýri líkast, ég er orðin rúmlega 30 kg léttari en þegar ég kom fyrst inn í O.A. og komin aftur hingað inn og búin að finna sponsor og allt í góðum gír.  Þetta hefur samt verið eitt mesta álagsár sem ég hef upplifað út af öllum þessum veikindum í kringum mig en núna næ ég bara að þakka bara fyrir að hafa fengið að vera skýr og upplifa allar tlfinningarnar sem hafa komið upp.  Þetta er hægt einn dag í einu og svo hlakka ég bara til að fara að hjálpa öðrum hérna inni því við gerum þetta saman – ekki ein – í því felst batinn! 


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 20:24:09 / minnkandi

Dagur 346 - sunnudagurinn 24.júní

Var að koma úr einnar nætur útilegu í Skorradal.  Þetta var alveg dásamlegt, fór með manninum mínum, systur minni og bróður og þeirra fjölskyldum.  Frábært veður og fráhaldið í lagi :)  Ég bakaði meira að segja morgunpönnuköku í morgun á gasinu sem var þvílíkur lúxus!!  Í gærkvöldi grilluðum við svo og ég var bara með fullt af grænmeti og hafði bakað nokkrar 30g hveitikíms-kökur líka til að vera vel undirbúin.  Mjög gott að fá sér þær í dag í hádeginu.

Svona var matseðill dagsins í dag:

M:  PR:  120g vanilluskyr, 30g sojamjöl, 1 egg.  Ávöxtur:  240g blönduð ber

 

 

H:  PR:  30g hangikjöt, 30g harðfiskur, 30g ostur.  Grænmeti:  60g hveitikím.  Fita:  15g

 

 

K:  PR:  30g hangikjöt, 1 egg, 30g harðfiskur.  Grænmeti:  60g hveitikím, 120g gúrka.  Fita:  30g

 

 

 

Vona að allir hafi notið helgarinnar:)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 22:02:33 / minnkandi

Dagur 342 - miðvikudagurinn 20.júní

 

Mikið var þetta nú góður dagur;   Dásamlegt veður, fráhald í lagi, engin matarþráhyggja, matarboð með fullt af gúmmolaði sem ég vigtaði auðvitað og mældi, samvera með fjölskyldunni þar sem hausinn á mér var nógu skýr til að vera ekki bara að hugsa um mat og tilfinningin sem ég hef í dag er þakklæti fyrir fráhaldið mitt allt sem ég hef.  Ef ég væri ekki í fráhaldi þá hefði þetta verið svosöm allt í lagi dagur EN;  Veðrið hefði verið þokkalegt, ég hefði örugglega verið í ofáti eða borðað eitthvað sem veldur mér fíkn, matarþráhyggjan hefði væntanlega valtaði yfir flestar aðrar upplifanir, í matarboðinu hefði borðað á mig gat (eða allavega eftir það),  samverunnar með fjölskyldunni hefði ég varla notið nema af skyldurækni og ég hefði án efa frekar verið að hugsa um allt sem ég ætti ekki heldur en að þakka fyrir það sem ég á. 

 

Hvort er nú eftirsóknarverðara? 

Rétt svar:  Það er þess virði að vera í fráhaldi!

 

Matseðill dagsins: 

M:  PR:  120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl  Ávöxtur:  240g blönduð ber 

H:  PR:   120g kjúklingur.  GrænmetI.  480g blandað grænmeti.  Fita:  15g

K:  PR:  120g svínakjöt.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

Þökkum fyrir það sem við höfum og finnum okkar leið út úr matarþráhyggjunni :)  


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 08:53:30 / minnkandi

Dagur 341 - þriðjudagurinn 19.júní

Kæru konur!  

 

Til hamingju með 19.júní :)

 

Nú eru yfir níutíu ár síðan konur fengu kostningarétt á Íslandi!! Þó jafnrétti sé ekki komið á í tengslum við alla þætti þjóðfélagsins þá eigum við náttúrulega frábæra kvenréttinda-sögu og stöndum framar en flestar þjóðir heims. Það er frábært og í því felst ótrúlegt frelsi!

 

Eitt af því helsta sem ég hef lært í gegnum matarfíkla- og meðvirkni-fræðin er að standa með sjálfri mér.  Og það merkilega er að ef maður er matarfíkill og nær að standa með matnum sínum í öllum aðstæðum þá smitar það út frá sér á öll önnur svið.

 

Stöndum með sjálfum okkur !!!!!

 

Matseðill dagsins: 

 

M:  PR:  480g ab-mjólk.  Ávöxtur:  240g epli  

H:  PR:  45g ostur, 30g hangikjöt.  Grænmeti:  60g hveitikím.  Fita:  15g 

K:  PR:  120g silungur  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

 

Bestu kveðjur og njótið dagsins.

 

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 10:39:43 / minnkandi

Dagur 339 - sunnudagurinn 17.júní

Gleðilega þjóðhátíð!

Matseðill:

Morgunn:  PR:  120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl.  Ávöxtur:  240g blönduð ber 

Hádegi:  PR:  30g hangikjöt, 15g ostur, 240g vanilluskyr og mjólk.  Grænmeti:  60g hveitikím.  Fita:  15g

Kvöld:  PR:  120g lambakjöt.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti. Fita:  30g

 

Njótið dagsins :) 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 19:28:22 / minnkandi

11 mánaða fráhalds-afmæli

Í gær átti ég 11 mánaða fráhalds-afmæli :)  Það fyndna var að ég steingleymdi að vigta mig um morguninn en ég vigta mig bara einu sinni í mánuði, á afmælisdaginn.  Aftur á móti mundi ég eftir því í morgun og það höfðu farið 400g þennan mánuðinn.  Fyrst sýndi vigtin 83.3 en svo skoppaði hún upp í 85.5 og hélst þar.  Í smá stund ætlaði ég að verða fyrir vonbrigðum en var sem betur fer fljót að sjá skóginn fyrir trjánum.  Það er víst ekkert óeðlilegt að það fari stundum lítið eða maður standi í stað þegar maður hefur verið þetta lengi í fráhaldi.  Heildarárangurinn er allavega sá að ég hef misst 28.5 kg á þessum 11 mánuðum sem gerir að meðaltali 2.60 kg á mánuði.  Frá hæstu tölu eru aftur móti farin 31.5.....það gera 63 smjörlíkisstykki......

Allra stærsti sigurinn er þó sá að það hafa farið mun kíló flogið af sálinni og matarþráhyggjan er ekki að trufla mig lengur.  Til að endurgjalda þetta mun ég halda áfram að vinna heimavinnuna mína, hjálpa öðrum í sömu sporum og smæla framan í heiminn....þá smælar hann nefnilega framan í mig :haha:

p.s. ekki gleyma að kíkja á pönnukökuna mína á www.123.is/minnkandi

P.S. 2  TAKK FYRIR HJÁLPINA OG STUÐNINGINN!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 20:34:58 / minnkandi

Mynd af morgunpönnukökunni

Þar sem mér hefur aldrei tekist að setja inn myndir hérna þá ákvað ég að prófa nýtt bloggsvæði.  Fékk mánuð frían til prufu og ætla aðeins að prófa áður en ég flyt alveg.  En ég skutlaði inn mynd af morgunpönnukökunni í hátíðarbúningi.  Þessi var í morgun-konuboði :)

www.123.is/minnkandi

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 20:15:04 / minnkandi

Dagur 335 - miðvikudagurinn 13.júní

Hér gengur allt sitt vanagang, fráhald einn dag í einu og mér líður mjög vel líkamlega og andlega.  Maður verður svo ansi hreint hress af því að vera ekki alltaf að stöffa sig að það eru engar ýkjur að segja að maður eignist nýtt líf. Sykur er minn veikasti hlekkur sama í hvaða formi hann birtist.  Nú er búið að gera vísindalegar sannanir á því að sykur hefur sömu áhrif á heilann í sumu fólki eins og áfengi hefur á suma, kókaín á aðra og amfetamín á enn aðra.  Auðvitað þola mjög margir og kannski flestir að borða sykur annað slagið en svo er til fólk eins og ég sem á mjög erfitt með að hætta þegar ég fæ sykur í kerfið.  Fyrir okkur er nánast lífsnauðsynlegt að finna leið til að sleppa sykri alveg úr fæðunni.  Langaði að segja þeim sem ekki vita að það eru mjög víða "falinn" sykur í matvælum Hann getur verið tiltekinn með ýmsum nöfnum því það er til margskonar sykur. Hér eru nokkur dæmi:

 

Strásykur (sucrose), ávaxtasykur (fructose), maíssíróp (corn sweetener), þrúgursykur (dextrose), maltþrúgursykur (maltodextrose), fjölsykrur (polydextrose), table sugar, brown sugar, molasses, honey, beet sugar, cane sugar, confectioner's sugar, powdered sugar, raw sugar, turbinado, maple syrup, high-fructose corn syrup, and sugar cane syrup, hunang, síróp, malt og hrísgrjónasæta.

 

Ef maður er ofæta af mínu kalíberi og jafn viðkvæmur fyrir sykri, þá er gott að miða við að hafa aldrei neinn sykur, hvaða nafni sem hann nefnist, í 4 efstu sætunum á innihaldslýsingum matvæla.  T.d.gæti innihaldslýsingin á áleggi verið:  Lambakjöt, salt, bindiefni, sykur...þar sem sykur er í 4.sæti þá myndi ég ekki kaupa þetta álegg!  Það væri aftur á móti í lagi ef hann væri í 5.sæti og neðar.  Til að vera 100% örugg þá sleppi ég líka hveiti, kartöflumjöli og sterkju en þessi efni kveikja líka hjá mér löngun í meiri kolvetni.

 

Fráhaldið í dag:

 

M:  PR:  120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl (morgunpönnukaka). 

Ávextir:  240g blönduð fersk ber (ég borða bara ávexti á morgnana til að fá ekki of mikinn sykur í líkamann)

 

H:  PR:  120g vanilluskyr, 45g ostur.  Grænmeti:  60g hveitikím.  Fita: 15g smjör

 

K:  PR:  120g lambakjöt á grillinu.  Grænmeti:  600g blandað grænmeti. Fita:30g

 

Vona að þetta gagnist einhverjum og svo vona ég að öllum gangi allt í haginn :)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 21:52:07 / minnkandi

Dagur 333 - mánudagurinn 11.júní

Til hamingju með þennan gullfallega sumardag:)

 

 

Mikið líður manni nú vel þegar sólin skín og vindinn lægir.......

 

 

Ég var að koma úr afmæli hjá bróðurdóttur minni.  Yfirleitt hringi ég bara á undan mér ef ég fer í veislur og spyr hvað verið í boði en nú kippti ég bara með mér mat ef ég skyldi ekki geta borðað það sem var á boðstólnum.  Keypti hálfan tilbúinn kjúkling í Hagkaup, grænmeti á salatbarnum og tók svo með mér hveitikím til að gera mér eftrréttar-köku.  Þau voru með grillaða hamborgara sem ég hefði í raun geta borðað en þar sem ég borða auðvitað ekki brauðið þá ákvað ég bara frekar að fá mér kjúklingasalatið.  Það er svo merkilegt að með því að standa ALLTAF með matnum mínum í öllum aðstæðum og gera aldrei unantekningar; leyfa aldrei efnunum sem valda mér fíkn að koma inn fyrir mínar varir, þá er þetta bara afskaplega lítið mál!  Eftir tæpa 11 mánuði í fráhaldi kemur þetta mér alltaf jafn þægilega á óvart og ég er alltaf jafn glöð yfir þessu :)  Bónusinn er svo sá að sé maður matarfíkill sem nær að halda með matnum sínum þá hjálpar það manni á öllum öðrum sviðum lífsins- maður verður einfaldlega mun minna meðvirkur og getur auðveldar staðið með sjálfum sér á öllum sviðum. 

Þetta er staðreynd :D

 

 

Matseðill dagsins: 

 

M:  PR: 120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl.  Ávöxtur:  Epli 

H:  PR:  120g kjúklingur  Grænmeti:  480g blandað grænmeti.  Fita:  15g 

K:  PR:  120g kjúklingur.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

 

 

p.s. Er farin að hlakka til að vigta mig en ég vigta mig alltaf 14.hvers mánaðar.....


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 02:34:56 / minnkandi

Dagur 331 - laugardagurinn 9.júní

Takk fyrir öll kommentin og kveðjurnar.  Já, ég vona svo sannarlega að allir prófi morgunpönnukökuna, hún er svo góð :)

Í dag fer ég í barnaafmæli til systur minnar og þá fæ ég mér hádegismatinn minn í formi hveitikíms og einhvers girnilegs áleggs, en þegar ég veit ekki alveg daginn áður hvað verður á boðstólnum þá skrifa ég "opið" þegar ég sendi inn og skrifa svo eftir á hvað ég borðaði.  Þetta geri ég þó bara þegar eru svona boð eða eitthvað sérstakt, annars ákveð ég alltaf daginn áður hver matseðill morgundagsins verður og sendi inn til trúnaðarkonunnar minnar.  Ef einhver breyting verður á fyrirhuguðum matseðli þá sendi ég breytingar-póst eða sms.  Með þessu og því að sleppa því alveg að borða þær matartegundir sem valda mér fíkn næ ég að hafa stjórn á matarfíkninni minni einn dag í einu - ferlega skemmtilegt :haha:

Dagurinn í dag:

M:  PR: 120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl.  Ávöxtur:  240g blönduð ber 

 

H:  PR:  OPIР fer í afmæli og fæ mér eitthvað fráhaldsvænt - 120g prótein, 480g grænmeti

(eða 60g hveitikím), 15g fita

 

K:  PR:  120g kjúklingur.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

 

En heyrirði....hafiði heyrt um konuna sem minnkaði svo mikið að hún varð að holu? :D

 

Eigið frábæran dag! 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 23:39:00 / minnkandi

Dagur 328 - þriðjudagurinn 5.júní

Matseðill dagsins:

M:  PR:  120g vanilluskyr, 1 egg, 30g sojamjöl (ef þið hafið ekki prófað hana nú þegar, þá verðið þið að prófa morgunpönnukökuna einhvern daginn - hún er svooo góð!)  Ávöxtur:  240g blönduð ber
 

H:  PR:  30g harðfiskur, 30g kæfa, 240g vanilluskyr og nýmjólk.  Grænmeti:  60g hveitikím.  Fita:  15g 

K:  PR:  120g lax.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

 

 

Þessi mánuður hefur rokið áfram og bráðum á ég 11 mánaða fráhalds-afmæli.....þá styttist nú heldur betur í árs afmælið :haha:

 

 

Munið að ef fráhaldið er nr.1 þá verður allt annað í lífinu miklu léttara - þetta er staðreynd :!:

 

 

Njótið dagsins:P


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 19:40:20 / minnkandi

Dagur 326 - sunnudagurinn 3.júní

Ferðin á Lækjarbrekku í gærkvöldi gekk rosalega vel og við fengum mjög góðan mat.  Þau voru alveg með pöntunina á hreinu og ég sá á magninu sem ég fékk að þetta var allt eftir settum reglum. Svona var matseðillinn:

PR:  120g bleikja.  Grænmeti:  600g blandað grænmeti.  Í forrétt fékk ég blandað salat, fullan stóran disk og svo var rosa gott eldað grænmeti með matnum;   Aspas, blómkál, sellerírót og gulrætur og svo ferskar kryddjurtir yfir allt saman, dill og steinselja.  Nammi, nammi, namm - takk fyrir mig :)

Maðurinn minn útskrifaðist með 8.97 í meðaleinkunn úr MBA-náminu - duglegur strákur :)  Þannig að það var nú aldeilis tilefni til að fagna og fara út að borða....

Dagurinn í dag var síðan svona:

M: PR:  480g ab-mjólk og vanilluskyr.  Ávöxtur:  240g bláber og epli

H: PR:  120g grænmeti.  Grænmeti:  480g blandað grænmeti.  Fita:  15g

K:  PR:  120g lax.  Grænmeti:  30g hveitikím, 360g blandað grænmeti.  Fita:  30g

Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld og vakna snemma á morgun og skutla mér í bleyti í saltvatn í Neslauginni.  Góða nótt!

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28
FyrriNæsti
RSS tengill