Ferðin á Lækjarbrekku í gærkvöldi gekk rosalega vel og við
fengum mjög góðan mat. Þau voru alveg með pöntunina á hreinu
og ég sá á magninu sem ég fékk að þetta var allt eftir settum
reglum. Svona var matseðillinn:
PR: 120g bleikja. Grænmeti: 600g blandað
grænmeti. Í forrétt fékk ég blandað salat, fullan stóran disk
og svo var rosa gott eldað grænmeti með matnum; Aspas,
blómkál, sellerírót og gulrætur og svo ferskar kryddjurtir yfir
allt saman, dill og steinselja. Nammi, nammi, namm - takk
fyrir mig 
Maðurinn minn útskrifaðist með 8.97 í meðaleinkunn úr MBA-náminu
- duglegur strákur
Þannig að það var nú aldeilis tilefni
til að fagna og fara út að borða....
Dagurinn í dag var síðan svona:
M: PR: 480g ab-mjólk og vanilluskyr. Ávöxtur:
240g bláber og epli
H: PR: 120g grænmeti. Grænmeti: 480g
blandað grænmeti. Fita: 15g
K: PR: 120g lax. Grænmeti: 30g
hveitikím, 360g blandað grænmeti. Fita: 30g
Ég ætla að fara snemma að sofa í kvöld og vakna snemma á morgun
og skutla mér í bleyti í saltvatn í Neslauginni. Góða
nótt!